Fyrsta Tvítuga Gyðjan
Hæ fólkJájá þið eruð að sjá rétt.. Sibban er loksins að blogga hérna
Það er nú alveg saga til næsta bæjar með daginn í dag, Franzí Fabjúlus á afmæli í dag

Heh, en já hvenær er svo næsta Gyðjupartý stelpur??
Þangað til næst,
Sif Haukdal
Loksins
Vaá.. hvað maður er feitt, sveitt lélegur í blogginu hérna. Allavega fyrsta bloggið mitt í LANGAN tíma.. en til þess að hljóma ekki of ömurleg þá segi ég að þetta sé fyrsta bloggið mitt á árinu ;) hehe.. hljómar allavega betra :D
Hvað um það.. þá hefur margt og mikið drifið á mína daga, skólinn, jólapróf, Austurríki, kærastaleysi ( :-O ), skóli og aftur skóli, jólagjafir og hitt og þetta :D Kannski er þetta ekki margt.. í hausnum á mér var þetta frekar margt.. en ég læt þetta standa.
Hélt að ég hefði alveg svakalega mikið að segja en svo er víst ekki.. er allavega buin að stara á skjáinn og lyklaborðið til skiptis í nær 5 mínútur.. það getur ekki verið eftir allan þennan tíma sem ég hef ekki bloggað að það hafi ekkert gerst..! fjúú
Allavega... þá er maður búinn að taka frá 3. febrúar.. ;) þið vitið :D hehehe..:D sem er bara töff :D omg.. já og ég kemst.. :D újé :D hlakka geggjað til :D
Mig langar ekkert smá að hafa þetta lengra.. en spurning um hvort ég geti virkilega setið og starað á skjáinn án þess að pikka inn staf..!! :S Spurning hvort ég bloggi ekki bara seinna þegar ég hef eitthvað að skrifa um..
- beggan
!NÝTT BLOGG!
Np; Put your money where your mouth is - JET
Ég var búin að lofa bloggi upp í ermina á mér fyrir löngu, en einhvern veginn hef ég verið svo ótrúlega upptekin við að gera ekkert í jólafríinu að ég hef ekki fundið tíma til þess. En.. nú er komið að því!

Desember er búinn að vera viðburðaríkur og ansi skemmtilegur mánuður. Byrjaði allt með prófageðveikinni þar sem ég tók 9 próf og gekk bara svona líka ansi vel í þeim, ekkert nema gott um það að segja. Nú er bara ein önn eftir í Verzló og það er frekar skrýtið að hugsa til þess.. fólk er alltaf að spurja mig hvenær ég sé að fara að útskrifast og ég man þegar ég sagði "eftir tvö ár" en um daginn sagði ég "26. maí 2007".. That's weird. Maður fer bara að vera súper fullorðinn, haha. Svo þoli ég ekki þessar endalausu spurningar "hvað á svo að gera eftir stúdentinn?". Comon, getur fólk ekki rætt við mig um pólitík eða eitthvað, e-ð allt annað en þetta.. þó ég sé svona nokkurn veginn búin að gera það upp við mig hvað ég ætli mér að gera þá fer þessi spurning rosalega í taugarnar á mér. Svo finnst mér líka leiðinlegt að vera búin að blaðra út um allt að ég ætli að gera e-ð ákveðið, og svo kannski hætti ég við það.. er ég ein um þetta?

En jæja, eftir prófin tók við djamm.. nei djók, ég er bara að reyna að hafa þetta spennandi!

Afmælið mitt tók við, ég komst loksins í Gyðjutölu þar sem ég var alveg búin að vera eina 18 ára gyðjan í freeekar langan tíma. Jeij, nú náði ég ykkur stelpur!
Eeen, það verður víst ekki lengi..Svo tóku þessu yndislegu jól við. Þau voru æði hérna megin, vildi samt að fríið væri lengra, er ekki einhver sammála mér? Búið að vera alltof fljótt að líða.
Ég hafði það allavega svakalega gott um jólin, fékk afskaplega fallegar jólagjafir og ég veit ekki hvað og hvað..Í gær fór ég svo og keypti það sem ég er búin að vera á leiðinni að kaupa í meira en heilt ár!

Já, þessi græja er algjör snilld, svo ekki sé meira sagt. Kostar auðvitað peninga samt, en það er þess virði.
Verð samt að minnast á mína bestu jólagjöf þetta ár. Ég er ekki með enska boltann hérna heima þrátt fyrir gríðarlega löngun til þess, en það er aðallega vegna þess að ég er ein sem horfi á þetta og þarf því að borga þetta sjálf og síðan fæ ég bara ekkert að horfa á þetta því allir vilja alltaf horfa á e-ð annað akkúrat á sama tíma.. Ein á móti restinni af fjölskyldunni,virkar ekker voða vel. Ég er því búin að ná í mér forrtið SopCast, sem gerir mér kleift að horfa á alla leikina sem ég vil í beinni í tölvunni. Það er samt hundó leiðó að nota þetta forrit, jafnast ekkert á við að horfa á þetta í sjónvarpinu í beinni - eeen ég læt mig hafa þetta. En allavega, svo ég komi mér að efninu. Eins og flestir vita ég er ég forfallinn Púllari, og haldiði ekki að SkjáSport og allir styrktaraðilarnar hafi ákveðið að gefa landsmönnum tvo fótboltaleiki í opinni dagskrá í jólagjöf. Og vitiði til, báðir eru Liverpool leikir.. þannig að ég er bara happy happy happy person núna.
Ég er samt svona 100% viss um að mér tókst að svæfa alla lesendur með þessu innslagi, en það verður bara að hafa það.. ég hef ekkert betra að segja!


Jæja, þar hafiði það.. þetta fína blogg!
Ég skora á Sif að blogga næst af mikilli list.. Þangað til næst!
Heyja
Eitt stykki jólablogg sakar ekki
Herðu við erum náttla lélegastar í heiminum að blogga. En alla vega þá erum við allar í prófum og alla vega ég og Sif erum búnar á miðvikudaginn 13 des. En Begga og Heyja eru búnar 14.Þá ætlar maður sko að fara byrja að versla jólagjafirnar, og slaka á og gera eitthvað skemmtilegt ekki læra læra læra.
En alla vega á planinu er að fara á afmælið hennar heyju sem hún ætlar að halda í Garður Hills þann 16. desember. Það verður örgla heavy stuð. Get ekki ímyndað mér annað.
Ég er að læra undir myndlistarsögu. Er alveg að deyja, ekki skrítið því bókin er 10 cm á þykkt og ég er búin núna að lesa 346 bls heavy stuð.
Getið sko ekki í alvöru ímyndað ykkur hvað ég hlakka til jólanna og áramótanna og til nýs árs bara og svo til páskanna og svo til sumarsins hehe....en fyrst til jólanna. Það er alveg nóg í bili. Hugsa um hvað maður eigi að kaupa í jólagjöf og soddan. En allavega mig langaði bara að henda inn einu bloggi sökum þess að ég er þreytt á að læra og mig langar að gera allt annað.
kv. Ykkar Fanney Björk, eina gyðjan sem hefur skrifað á þessa síðu oftar en 11 sinnum! Heil og sæl og vona að ykkur gangi ótrúlega vel í prófunum!
Herðu myndarugl djö
Herðu var að reyna laga myndirnar, þannig er bara mál með vexti að myndirnar eru of stórar fyrir þetta bloggar.is þannig að þær geta bara verið þetta stórar, þannig eitt getum við gert, er að minnka þær allar sem tekur tíma og einhver annar má gera eða skipta um hvar við setjum inn myndirnar og hætta með snapfish, því þeir eru komnir með stærri upplausn á myndum.En á morgun er 3 bekkjarhittingur. Bara farin að hlakka til.....:D
MYNDIR
komnar eru myndir frá Gyðjupartýinu sem haldið var í gær :) þær eru samt e-d skrítnar því það er eins og það vanti hluta á þær hægra megin.. ef þið kunnið að laga það þá endilega gerið það :P híhí en ég skemmti mér stórkostlega. Geggjað góður matur og alles.
Vona að þú setur þínar myndir inn sem fyrst Fanney ;)
Takk kærlega fyrir mig :D
Tilkynning
Gyðjupartýið verður haldið föstudaginn 22. september klukkan, já það kemur later, um matartímaleyti. Þannig ég hlakka bara til að sjá ykkur hressar og kátar.. heima hjá mér, þið vitið hvar kökuland er:D híhíkv. Fanney Björk
Gyðjupartý......
Stelpur!!!!!!!!
Takið eftir!!!!!!!!
Gyðjupartý um helgina!!!!!
Í boði Fanneyjar Bjarkar!!!!!
Skyldumæting fyrir einungis meðlimi!!!
Aldrei-verðandi-meðlimir eru ekki boðnir!!!!
Hlakka til að sjá ykkur!!!!!
Fleiri upplýsingar seinna:D!!!!
Kv. Fanney Björk
Fjölbraut Garðabæ vs. Verzló
Hellú, ég verð nú bara að segja eitthvað hérna. Það vill svo vel til að skólinn er byrjaðúr á fullu og viti menn hvað gerði Fanney í dag. Hún teiknaði allsberan karlmann. Já það er alveg satt. Frekar óþægilegt verð ég að segja......mæli ekki með því en svona er þetta og ég bíst við því að þurfa að gera það aftur á morgun. Skom maður var ekki í neinu einasta klæði ónei.En hvað segiði stelpur, eruði þið ekki að meika skólann:D
Ég er alla veganna rosa ánægð í mínum skóla, soldið skondið að labba um á sokkaleistunum allan daginn. Svo vanur að vera í skónum. En það er samt bara betra:D
Herðu já síðan er ég eilla fræg, kom í imbakassanum í gær, þið sem misstuð af því, misstuð af miklu. Ég var ótrúlega falleg ásýndum í sjónvarpinu, það er sagt að sjónvarpið fegri mann.....
Hef þetta ekki lengra, heimanámið bíður mín!!!
kv. ykkar Fanney